fimmtudagur, ágúst 30, 2007

Gaman gaman

Fór í keilu í gær og í dag fór ég í það sem er kallað discgolf en myndin fyrir ofan lýsir því eiginlega alveg. Fyrir neðan keðjurnar eru nokkurskonar karfa sem maður á að hitta í. Þetta er uppbyggt eins og golf, nema að maður kastar nokkurskonar frispídiskum, mismunandi þungum eftir því hvort maður vilji pútta eða kasta langt. Við spiluðum 12 "holur" og var ég sem sagt í liði með kennaranum, köstuðum til skiptis og spiluðum við eitt kvensupar en töpuðum. Eitt skiptið stóð kennarinn fyrir aftan mig en á einhvern ótrúlegan hátt tókst mér að skjóta hana næstum í andlitið en hún rétt náði að henda sér niður, þá held ég einkunnin hefði orðið góð þá, ha ha. Hlógum reyndar geðveikt mikið af þessu á eftir, ekki hægt annað. Í fyrramálið erum við svo að fara í skylmingar, er ótrúlega spennt fyrir því. Vonandi bara að ég slasi mig ekki eða aðra, kemur í ljós.

Þá eru BL og Eyjó farin heim aftur og eru við ekki alveg sátt við það en fáum engu um ráðið.
Áttum góða stund saman, fórum út að borða, versla, BL passaði fyrir okkur á meðan ég fór á foreldrafund og í saumóinn sem ílengdist aðeins, ha ha. Hlökkum mikið til að hitta þau og restina af fjölskyldumeðlimum um jólin.

Litla krúttið búinn að vera heima í 2 daga með hita og missti því af dýragarðsferð í dag með dagmömmunni, frekar svekkjandi. Höldum honum líka heima á morgun þannig að pabbinn á heimilinu sefar frekar lítið þessa dagana en hann er hörkutól, ójá.
Svo á morgun erum við að fara í Sirkus Arena sem verður staðsettur hér uppi á Amager. Fengum sæti á fremsta bekk og verður það eflaust geggjað, vona bara að við verðum ekki tekin upp, shitt þá verð ég sko fljót að benda á pabbann. AR verður hérna heima hjá barnapíunni okkar henni Malene en hún er dóttir dagmömmunnar og hefur nokkrum sinnum passað krúttið.
Á laugardaginn er svo sommerfest hérna á Kolleginu þannig að það er nóg að gera.
Biðjum að heilsa í bili og takk fyrir kvittið. Ævintýrafararnir.

4 Comments:

Blogger Lilja said...

Haha, mín bara komin í nýja peysu og "gulrótarbuxur" LOKSINS!! Ég fæ þau heim eftir tvo tíma :D Knús og kossar frá Íslandi.

12:13 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Jæja elskurnar mínarnar
mikið hefur verið að gerast hjá ykkur undanfarið litli kútur orðin veikur einu sinni enn átti bara að vera eftir hjá ömmu í fersku lofti fullt af hreinni sól er seinni kassinn kominn viltu gefa mér mynd myndina af kristofer sem er á blogginu hans ástar kossar frá langömmu

8:47 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Kveðja frá Sønderborg.

6:10 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Hellú frænka ég gæti trúað að gaman sé að skylmast. Ég er að prófa að skrifa eitthvað bull og ákvað að senda slóðina til þín. http://www.123.is/hneminn/default.aspx?page=blog
kveðja frá bifröstinni

6:26 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home