mánudagur, desember 15, 2008

Það styttist nú aldeilis í Íslandsför, aðeins 5 dagar. Erum orðin rosalega spennt að koma á klakann og hitta alla sem okkur þykir vænt um og auðvitað hina líka. Því miður náum við nú ekki að hitta Lilju og fjölskyldu því að þau fara til Florida daginn áður en við komum og koma heim daginn eftir að við förum, glatað....
Litla krúttið er lasinn, með hita og kastaði upp áðan. Alveg sama pest og skvísan var með í síðustu viku. Er því búin að vera heima í dag og á svo aðeins 2 vinnudaga eftir fram að jólafríi, jibbí.

Við fórum á litlujólin í Íslenskuskólanum síðasta laugardag og var það mjög huggó. Borðuðum allskonar góðgæti sem krakkarnir komu með, sátum og spjölluðum og sungum svo nokkur jólalög í lokin.Helga Stína kennarinn þeirra og krakkarnir.

Um kvöldið var okkur svo boðið í mat til vinafólks okkar, Eiríks og Guðfinnu og sátum við þar fram yfir miðnætti.

Sunnudagurinn fór svo í afslöppum fram eftir degi og svo var drifið sig á ÍSLENSKT jólaball á Norðurbryggju og var það hin ágætis skemmtun.

Og enn fjölgar íslenskum kollegibúuum en Unnur og Dagur eignuðust hann Blæ, 8. desember síðastliðinn en drengurinn sá átti nú ekki að koma í heiminn fyrr en seinnipart janúar en eitthvað langaði honum í jólapakka og ákvað að mæta. Þau mæðgin hafa það fínt á spítalanum og vonast auðvitað eftir að komast heim fyrir jól.

Annars er nú nóg að gera í afmælisundirbúning, B er búin að bjóða bekknum sínum heim næsta fimmtudag og 3 öðrum vinkonum þannig að ef allir mæta þá verða 26 börn og 4 fullorðnir í börnerumminu, gaman gaman.

Pabbinn alltaf að vinna og nóg að gera hjá honum svona rétt fyrir jólin. Var fyrr í kvöld að syngja einsöng á tónleikum í skólanum sínum en því miður komst ég ekki fyrir litla lasna gaurnum okkar. Stóru börnin fóru svo áðan á skátajulehygge og verða eitthvað fram eftir kveldi...

Biðjum að heilsa í bili. Ævintýrafararnir.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

hæ öllsömunþað fer aldrei í gegn sem eg er að skrifa hér er allt á kafi í snjó vonandi verður hann ekki farin áður en þið komið takk fyrir að senda myndirnar búið að steikja laufabrauðið jæja bara 2 dagar eftir knús og kossar langamma

1:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

hæ öllsömunþað fer aldrei í gegn sem eg er að skrifa hér er allt á kafi í snjó vonandi verður hann ekki farin áður en þið komið takk fyrir að senda myndirnar búið að steikja laufabrauðið jæja bara 2 dagar eftir knús og kossar langamma

1:41 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

takk fyrir kveðjur á síðunni okkar! :) nú erum við komin heim svo mamman kemst á netið og getur aftur farið að fylgjast með því sem gerist þar. ekkert smá falleg og flott börn sem þið eigið!!

unnsa og co**

1:41 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home