mánudagur, desember 31, 2007

2007/2008

Jæja þá er kominn gamlársdagur og styttist í að við förum heim. Fljúgum heim að morgni 2. jan. Tíminn búinn að líða ansi fljótt en við erum sko búin að hafa það gott.
Erum búin að bralla ýmislegt t.d.
halda afmælisveislu
fara í jólaboð og heimsóknir
fara á jólaball
fara í sveitina að skoða beljur
fara í þrítugsafmæli
hrynja í það með Jæjakonum og mökum
búa til snjókalla
en það mikilvægasta er að við erum búin að hafa það yndislega kósí með börnunum okkar fimm.

Í dag fara B. og K. til pabba síns og verða þar fram yfir áramót. SB og ÁÝ verða hjá okkur yfir áramót þannig að það verður eflaust stuð í kvöld ef veður leyfir. Lilja og fjölsk. og Ari brósi ætla líka að koma austur þannig að það verður næstum fullt í kotinu hjá mömmu og pabba.

Við óskum ykkur gleðilegs árs og takk fyrir það gamla og guðs bænum farið varlega í kvöld.
Áramótakveðja. Auður, Jói og fimm fræknu.

7 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hæ hó! Gleðilegt ár kæra fjölskylda og takk fyrir samverustundirnar á því gamla. Sjáumst hress á nýju ári.
Kv. Sigga

8:39 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allt gamalt og gott.
Kveðja Hafdís

9:06 f.h.  
Blogger Heiðrún said...

gleðilegt ár

3:15 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt ár og takk fyrir síðast. Sjáumst hress,
kv. Sigga Þ.

7:38 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

gleðilegt ár kæra fjölskylda,
kv, Guðrún Elín

9:19 e.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt árið og takk fyrir öll gömlu góðu ;-) rosalega var nú gaman að hitta ykkur um daginn.. Hafið það sem allra best :-)
Kv. Þórunn

9:07 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla.
Kveðja frá okkur í Svíaríki

10:30 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home